Inge Kauffeldt svarar algengum spurningum
Hvaða mat á maður að borða?
Þú átt að fylgja matarprógrammi sem er næringalega rétt samansett, og þú færð öll þau eggjahvítuefni, vítamín og steinefni sem þú hefur þörf fyrir, þó að kaloríu og orkumagnið sé minna en það sem þú ert vön/vanur að borða.
Getur fjölskyldan borðað sama mat og ég?
Já auðveldlega, þú átt að borða allan venjulegan og fjölbreyttan mat, mikið af grænmeti, ávöxtum, fiski, mjólkurvörurm, og fitusnauðu kjöti. En þú færð líka uppskriftir af kökum og dessertum sem þú mátt borða.
Hvað þarf maður að vera mikið í yfirþyngd til að vera með?
Við erum með meðlimi sem þurfa bara að léttast um ca 5 kg, og að sem þurfa að léttast um 100 kg eða meira. Allir eru velkomnir.
Hvað léttist maður mikið?
Konur léttast að meðaltali ca 1 kg á viku. Menn léttast að meðaltali 1.5 kg á viku
Hvernig fara fundirnir fram hjá Íslensku Vigtarráðgjöfunum?
Fyrsta skipti sem þú kemur fer ég mjög vel í gegnum matarprógrammið, síðan kemur þú í vigtun einu sinni í viku. Eftir vigtunina hittast meðlimirnir í afslöppuðu umhverfi, þar sem ég svara spurningum um prógrammið, gef hugmyndir og hjálpa ykkur að halda áfram næstu viku.
Sjá aðrir hvað ég er þung(ur)?
Nei, þyngd þín er leyndarmál milli þín og mín.
Hversu langan tíma tekur þetta í hvert skipti?
Þegar búið er að vigta alla byrjar fræðslan og hún tekur ca. 30-45 mín.
Fyrsta skipti máttu þó reikna með 1 klst. í viðbót til að fara í gegnum matarprógrammið.
Þarf ég að vera í fræðslunni í hvert skipti?
Ef þú getur ekki verið í fræðslunni getur þú látið nægja að vera vigtuð/vigtaður.
En þín vegna er gott að vera og” fá allt með” því reynslan sýnir að það eykur áhugann.
Hvað kostar að vera með?
Fyrsta skiptið borgarðu 6.200 kr fyrir að verða meðlimur, síðan kostar það 900 kr á viku, eins lengi og þú ert meðlimur. Þegar þú ert búin að ná kjörþyngd, geturðu komið ókeypis og tekið þátt í hverri viku, en þú þarft að halda kjörþyngdinni.
Hvað ef ég kemst ekki í vigtun?
Ef þú getur sýnt fram á gilda ástæðu(t.d v/ vaktavinnu eða búsetu), næst þegar þú kemur kostar það ekki neitt.
Þar fyrir utan áttu rétt á 5 vikna fríi á ári, án þess að það kosti þig neitt.
Hversu lengi er ég meðlimur?
Þú ert meðlimur eins lengi og þú sjálf(ur) vilt vera með, þú getur hætt hvenær sem er.
Hvernig finn ég kjörþyngd mína?
Við finnum hana í sameiningu út frá aldri, hæð og beinabyggingu
Hvernig fer ég að því að halda kjörþyngdinni?
þú heldur áfram að borða eftir matarprógramminu okkar, en það er líka pláss til að borða og drekka eitthvað af því sem þú hefur kannski saknað. Þú færð stabiliseringsprógramm sem útskýrir þetta nánar. Hollur matur og regluleg þjálfun tryggir að þú haldir vigtinni.
Hvernig get ég orðið meðlimur?
Það er ekki nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram. Þú mætir bara á staðinn og skráir þig.
Nýir meðlimir geta byrjað í hverri viku.
Getur maður mætt á fund og séð hvernig þetta fer fram?
Já, þú ert alltaf velkomin(n) að koma og vera með í fræðslunni og sjá hvernig hún fer fram.
Af hverju virkar prógrammið svona vel?
það sem gerir það, er að hluta er næringalega rétt samsetning, ogl hluta til aginn. Það getur maður ekki gert aleinn heima, þar sem maður býr til sínar eigin reglur, sem auðvelt er að breyta. Það að þurfa að standa sig gagnvart ráðgjafanum og hinum í hópnum, og að maður nær næstum ekki að gera neina vitleysu, þar sem vigtun fer fram einu sinni á viku, eða á hálfsmánaðarfresti, gerir að maður léttist.
Hvað með veislur, afmæli, eða föstudagskvöld út að borða? Er það liðin tíð?
Það þarf ekki að vera. Þú getur farið á marga staði og fengið einhvern mat sem passar inn í prógrammið. En stundum þarf maður kannski að kanna hvað er í boði. En góð hugmynd er að leggja botninn heima með grænmeti, þá verða freistingarnar ekki svo stórar.
Hvenær er lokað vegna sumar- og vetrarfría?
Það er lokað 5-6 vikur yfir sumartímann (nánar auglýst) og 2 vikur yfir jól og áramót.

Inge Kauffeldt
|
|
|