|
Ef þú ert ekki nú þegar meðlimur, en langar til þess þá getur þú mætt á þá fundi sem í boði eru, en ákveðnir tímar eru sérstaklega fyrir byrjendur. Aðrir tímar eru eingöngu fyrir þá sem eru nú þegar meðlimir.
Þú skalt reikna með að það taki um 2 klukkutíma í fyrsta skipti þegar þú mætir, þá er farið í gegnum allt matarprógrammið. Fundirnir eru sérstaklega ætlaðir fyrir konur, karla og unglinga með ofþyngdarvandamál en þeir sem eingöngu hafa áhuga á að kynna sér nýtt mataræði eru einnig velkomnir.
|
|
Uppskriftirnar eru dæmi um rétti, sem Íslensku Vigtarráðgjafarnir mæla með og nota í prógramminu. Heimasíðan er uppfærð með nýjum uppskriftum (ca. einu sinni í mánuði). Sjá hér
Ef þér líst vel á þá mælum við með uppskriftabókunum ”Spis dig slank” eða ”Borðaðu þig granna(n)” þar sem þú finnur fullt af góðum réttum og leiðbeiningum. Bækurnar getur þú pantað hér
|
|