Uppskriftir
Íslensku Vigtarráðgjafarnir
 
Veljið svæði:

 

Ath!
Einu sinni í mánuði kemur uppskrift mánaðarins og er henni dreift á fundum.
Heimasíðan er uppfærð með nýjum uppskriftum ca. einu sinni í mánuði.

 
  Þjóðhátíðarkaka  
     
  Svampbotn:
2 egg
½ bananai
30 g létt majónes
Smá fljótandi sætuefni
½-1 tsk vanillukorn
2 dr möndluessens
50 g undanrennuduft
10 g lyftiduft
15 g hveiti

1 tsk viðbit/olía

Þeytið eggjarauðurnar með banana og majónesi. Hrærið sætuefni vanillukorni, möndluessens, undanrennudufti, lyftidufti og hveiti.

Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið varlega í deigið. Smyrjið lítið springform (14 cm í diameter) og hellið svo deiginu í. Bakist í ca 45 mín við 180° Látið kökuna kólna.

Krem:
1 dl fjörmjólk
3 tsk búðingaduft án sykurs með möndlubragði (oetker)
Vanillukorn
Fljótandi sætuefni

125 g sýrður rjómi 10%

Þeytið búðingaduftið og mjólkina saman í skál, Hellið í pott og þeytið þangað til suðan kemur upp og búðingurinn verður þykkur. Bragðbætið með vanillukorni og sætuefni. Kælið kremið og hrærið sýrðarjómanum í.

Skreyting:
50 g fersk hindber
50 g fersk bláber og rifsber
75 g fersk jarðaber
65 g fersk kirsuber
Skerðu kökuna í tvennt þversum. Smurðu helmingnum af kreminu á botninn og settu hinn helminginn af kökunni ofaná. Smurðu restinni af kreminu ofaná.
Skreytið með öllum berjunum ofaná kökuna

 
  Brokkolí-gratin  
     
  50 gr fennel
150 g broccoli
100 g sveppir
100 g púrra
1 egg
½ dl undanrenna
salt-pipar
½ tsk. muskat.
75 g magur ostur
Skerið grænmetið í smátt og steikið á pönnu í smá krafti. Leggjið í eldfast fat og hellið eggjamassanum yfir og svo ostinn í restina og bakið í 30-40 mín við 225 gráður.

 
  Eplabaka  
     
  1 epli í sneiðar
2 tsk plómumarmelaði
kanill

Deig:
15 gr majónes
15 gr hveiti
10 gr undanrennuduft

125 gr sýrður rjómi 10%
kanill

Setjið eplið í lítið eldfast mót, dreyfið marmelaðinu yfir eplið og stráið kanil yfir.

Blandið majónesi, hveiti og undanrennudufti og stráið yfir eplin Bakið við 200° í ca 15 mín.

Berið fram með köldum sýrðum rjómanum Stráið smá kanil ofan á sýrða rjómann

 
  Fylltar paprikur  
     
  Fylltar paprikur 1-2 rauðar paprikur
ca 1 lauf finthakkaður hvítlaukur
ca 150 g hálfir eða ¼ cherrytomatar
1 tsk ólifuolia
ca 1 tsk balsamicoedik
salt & sítrónupipar
150 g ost (magur) i sneiðum
smá oregano eða basilikumbr>75 g soðin hrísgrjón

Skerið paprikuna í helming, og takið kjarnana úr. Setjið í eldfast fat. Blandið hvítlauk, tómötum, olíu, balsamicediki ásamt salt og pipar og setjið fyllinguna í paprikurnar.
Síðan er osturinn lagður yfir og fatið er sett í heitan ofn við 200 gráður. Bakið í 20-25 mín.
Borið fram ofan á hrísgrjónunum, og skreytt með Kryddjurtunum.
Það má nota venjulega tómata líka, skorna í bita.

 
     

Nánari upplýsingar
Sími 865-8407