Hver er
Íslensku Vigtarráðgjafarnir
  Hverjir eru ÍVR  
     
  Íslensku Vigtarráðgjafarnir eru hluti af Dönsku Vigtarráðgjöfunum sem er alþjóða keðja sem samanstendur af ráðgjöfum, sem eru sérfræðingar með mikla faglega reynslu og bjóða upp á kennslu í að ”grenna sig án þess að sleppa úr einni einustu máltíð”.

Frá því að Inge Kauffeldt stofnaði Dönsku Vigtarráðgjafana árið 1981, hefur ráðgjöfum fjölgað jafnt og þétt og í dag er einnig hægt að fá kennslu á Íslandi eftir hugmyndafræði Dönsku Vigtarráðgjafana.

Þetta vinsæla matarprógram er samansett hjá Dönsku Vigtarráðgjöfunum með aðstoð næringaráðgjafa þannig að rúgbrauð og mjólkurafurðir ásamt ávöxtum og grænmeti er mikilvægur grunnur í mataræðinu.

Prógrammið var síðast lesið og yfirfarið árið 2005 af yfirlækni og offitusérfræðingi hjá Rannsóknarstofnun manneldis, Sören Toubro en hann staðfestir að árangur náist ef prógramminu er fylgt nákvæmlega eftir.

Aðalatriðið er að fæðið sé rétt samansett næringarlega þannig að það gefi okkur rétt magn af próteinum, vítamínum og steinefnum, þó svo að magnið, þ.e.a.s. hitaeiningarnar séu færri en maður er vanur að borða.

Hugmyndafræði okkar er raunhæf: Meðlimir okkar þurfa aðeins að missa 1 kíló á viku en halda samt áfram að borða bragðgóðan, mettandi mat, sem jafnframt er hollur, nærandi og ekki síst megrandi!

Matardagbækurnar eru sérsniðnar fyrir konur, karla og unglinga. Eftir nákvæma kynningu á prógramminu hittast meðlimir síðan vikulega á fundi í afslöppuðu umhverfi, vigta sig, fá góð ráð og leiðbeiningar og til að spjalla.

Á þessum fundum leggjum við áherslu á að styrkja hvern og einn meðlim til að ná markmiðum sínum og einnig að þeir læri af reynslu hvors annars, bæði góða og slæma. Einnig gefst tækifæri á að spyrja ráðgjafana um ýmsar matvörur, magn, uppskriftir, nesti og fleira.

Það er vilji okkar að allir fari heim með nýjar hugmyndir og endurnýjaðan kraft til að halda sér við efnið og að standast óteljandi daglegar freistingar.

Við teljum at þessir vikulegu fundir séu eitt af því mikilvægasta í því að meðlimir okkar nái þessum góða árangri við offituvandann og í því að breyta mataræðinu sínu.

Hjá Íslensku Vigtarráðgjöfunum starfa nú þegar nokkrir ráðgjafar, og starfa þeir nú á 6 stöðum/deildum um landið.


   

     

Nánari upplýsingar
Sími 865-8407